Námskeið - Seigla, streita, meðvirkni og samskipti
Kristín Sigurðardóttir og Gyða Dröfn Tryggvadóttir halda þetta vinsæla námskeið á Berjaya Hótel Héraði frá 1. til 4.apríl 2025.
Áhrifaríkt og valdeflandi námskeið sem færir þekkingu sem miðar að því að efla seiglu, bæta samskipti og auka þannig færni í lífi og starfi.
Athyglinni er beint að nýrri þekkingu og úrræðum, áhrifum og afleiðingum streitu og meðvirkni á samskipti og sambönd í lífi og starfi.
Námskeiðið hefst á þriðjudegi kl. 11.00 og lýkur kl. 14.00 á föstudegi.
Innifalið:
- Gisting með morgunverði í 3 nætur
- Námskeið í fjóra daga
- Hádegisverður þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag
- Kvöldverður, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag
- Einn aðgangur að Vök
Verð fyrir tvo: 377.110 kr. (188.555 á mann) í tveggja manna herbergi.
Verð fyrir einn: 213.755 kr. í eins manns herbergi.
800 kr gistináttaskattur per herbergi per nótt bætist við á hótelinu
Námskeiðið er styrkt af flestum starfsmenntunarsjóðum stéttarfélaga
Námskeið sem gefur verkfæri sem nýtast vel í starfi. Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti. Þau hafa m.a. áhrif á starfsánægju, vinnustaðamenningu og starfsanda. Að bera kennsl á þætti í vinnuumhverfi sem valda neikvæðri streitu, óheilbrigðum samskiptum og samskiptaleiðum (okkar eigin og annarra) er einkar mikilvægt þegar að því kemur að skapa gott starfsumhverfi með möguleikum á að auka færni og þróast í starfi.
Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, hvíldar og viðveru í náttúrunni.
Viltu :
- þekkja og skilja jákvæð og neikvæð áhrif streitu
- efla seiglu til að takast á við breytingar og áskoranir
- auka færni samskipta
- læra að setja heilbrigð mörk
- auka streituþol og nýta streituna til góðs
- minnka líkur á kulnun í starfi
- vera betur til staðar hverju andartaki
- lifa og leiða með hug og hjarta
Námskeiðið styður við aðgerðavakningu Tökum höndum saman sem Vinnueftirlitið stendur að til að efla heilbrigða vinnustaðamenningu og stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks. Það er ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Heilbrigð vinnustaðamenning hefur auk þess jákvæð áhrif á árangur og orðspor vinnustaða segir á vef Vinnu
Kennarar:
Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy) sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Gyða Dröfn er lýðheilsufræðingur EMPH og lauk námi í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Hún hefur iðkað Zen hugleiðslu í 23 ár undir handleiðslu Zen meistarans Kwong Roshi.
Kristín Sigurðardóttir er Slysa-og bráðalæknir, með heildræna sýn á heilsu og hefur alla tíð sem læknir sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu.
Hún er aðjúnkt við Læknadeild HÍ, gestakennari við HR og situr í Fræðslustofnun og Lýðheilsuráði Læknafélags Íslands. Kristín er vinsæll fyrirlesari sem hefur fjallað um heilsutengd málefni á fjölmörgum vinnustöðum og ráðstefnum. Hún rekur fyrirtækið Á heildina litið sem stendur reglulega fyrir námskeiðum og málþingum, þar sem fókuserað er á líðan og heilsu, m.a hvernig hægt er að nýta streituna til góðs í síbreytilegu umhverfi og efla seiglu. Sem eru lykilatriði til að dagna í lífi og starfi.
Ásthildur Garðars verður með djúpslökun/joga nidra. Hún er ráðgjafi hjá starfsendurhæfingu Austurlands, fyrirlesari og jóga nidra kennari hjá Lífslyst,þar sem hún leggur áherslu á bætta líðan með heildrænni nálgun á huga, líkama og umhverfi. Jóga nidra lærði hún hjá Kamini Desai.
Ásthildur er með B.ed gráðu í kennslu, meistaragráðu í jákvæðri sálfræði frá Árósarháskóla, grunnþjálfun í ACT og er einnig markþjálfi.
Almennir skilmálar
- 25.000 kr staðfestingargjald er rukkað um leið og bókun er gerð.
- Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
- Hægt er að breyta þessari bókun þar til 7 dögum fyrir komudag.
- Hótelið áskilur sér rétt að rukka heildarupphæð ef að bókun er afbókuð innan við 7 dögum fyrir komudag.
- Ef ekki næst nægur fjöldi þáttakenda fellur námskeiðið niður.
- Ef að námskeið fellur niður verður allt gjaldið endurgreitt.