Reykjavík Marina X Fly Over Iceland
Reykjavík Marina X Fly Over Iceland er frábær afþreyingar pakki þar sem þú upplifir dásamlega dvöl í höfuðborginni. Gestir fá að upplifa magnaða sýningu hjá Fly Over Iceland sem hefur verið gífurlega vinsæl hjá öllum aldurshópum.
FlyOver Iceland notar nýjustu tækni til að framkalla raunverulega flugupplifun. Sætin hreyfast í takt við flugið, fæturnir eru í lausu lofti og þjóta yfir vötn og jökla. Myndin er æsispennandi ferðalag um Ísland. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt gera upplifunina ógleymanlega.
Fly Over Iceland er í göngufæri við Reykjavík Marina en það tekur um 10 mínútur að ganga á milli.
Verð til 30.apríl.2023 :
42.270 ,- mv. tvo saman í tveggja manna herbergi (21.135,- á mann)
33.635,- mv. einn í eins manns herbergi
Innifalið:
- Gisting
- Morgunverður
- Einn drykkur á mann á Slippbarnum
- Miði á Fly Over Iceland sýninguna
Ef óskað er eftir að bóka auka nótt eða bókun fyrir börn má endilega senda beiðni á reservations@icehotels.is