Botnlaus Jólabröns og gisting á Canopy
Canopy Reykjavík og Geiri Smart bjóða upp á gott gistipartý á aðventunni.
Til í eitthvað meira fullorðins á aðventunni? Komdu og gistu á Canopy Reykjavík og mættu beint í botnlausan jólabröns Geira Smart.
Jólaðu mímósuna upp og njóttu jólalegra rétta með þínu besta fólki.
Brönsinn er Í boði alla laugardaga og sunnudaga frá 14. nóvember til 21.desember. Vinsamlegast passið að bóka einnig borð í Bröns.
Innifalið í tilboðinu:
- Gisting og morgunverður föstudags-, laugardags- eða sunnudagskvöld
- Botnlaus jólabröns*
- 20% afsláttur af mat og drykk (gildir ekki með öðrum tilboðum)
- Síðbúin herbergjaskil til kl. 13:00
- Hægt að bæta við annarri nótt á tilboðsverði
- Uppfærsla í premium herbergi ef það er laust
Verð föstudags- og laugardagskvöld með bröns:
Verð frá: 48.000,- fyrir tvo. (24.000,- á mann í tveggja manna herbergi)
Verð: 36.520,- fyrir einn í eins manns herbergi
Verð á aukanótt með morgunverði:
Verð frá: 32.900,- fyrir tvo. (16.450,- á mann í tveggja manna herbergi)
Til þess að bóka gistingu vinsamlegast sendið tölvupóst á reservations@icehotels.is eða hringið í síma 444-4570.
Vinsamlegast pantið borð í bröns með því að smella hér: Panta Borð
* Innifalið í botnlausum bröns:
- Botnlausir hátíðar drykkir í 2 klukkustundir (Jóla eða klassísk mímósa, jóla Spritz, jóla bjór & Gull Lite)
- Jólabrunch, fjórir réttir af hátíðar bröns seðlinum okkar & eftirréttar hlaðborð
24 klst. afbókunarfrestur
Tilboðið er bókanlegt frá 14.nóvember til 21.desember 2026
Bókunin er tryggð með kreditkorti - greitt við dvöl
Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Gistináttaskattur mun bætast við verðið og greiðist við komu. Gistináttaskattur árið 2026 er 800 kr per herbergi per nótt.