Fara í efni

Fundir & viðburðir | Mývatn

 


Fundar- og viðburðarrými á Norðurlandi

Berjaya Mývatn Hotel býður upp á einstaka fundar- og viðburðaraðstöðu í hjarta Norðurlands, umkringt stórbrotinni náttúru Mývatns. Hér sameinast kyrrð, þægindi og fagleg þjónusta sem skapar fullkomið umhverfi fyrir fundi, ráðstefnur, árshátíðir og hópaviðburði.

Hótelið býður upp á þægilega gistingu, ríkulegan morgunverð og heita potta  þar sem gestir geta slakað á eftir annasaman dag. Á Myllu Restaurant njóta hópar vandaðra veitinga í notalegu umhverfi, hvort sem um er að ræða hádegisverð, fundarkaffi eða hátíðarkvöldverð.

Í næsta húsi er Gamli Bærinn, vinsæll bar þar sem möguleiki er á karaoke, barhjóli og skemmtun - fullkomið fyrir árshátíðir og hópaviðburði.

Hvort sem um ræðir litla teymisfundi eða stærri fyrirtækjaviðburði, bjóðum við upp á sérsniðnar lausnir í einstöku umhverfi við Mývatn.

Hafðu samband og við hjálpum þér að setja saman viðburð sem hentar þínum þörfum.

Sendu línu á myvatn@icehotels.is eða hringdu í 594 2000. Við hlökkum til að heyra frá þér!

 

placeholder


Einstök fundaraðstaða 

Notalegt og fallegt rými sem býður upp á vel búna fundaraðstöðu í rólegu umhverfi við Mývatn. Hér skapast kjöraðstæður fyrir árangursríka fundi þar sem næði, náttúra og fagleg þjónusta fara saman.

Fundarsalurinn er 45 m² og hentar vel fyrir minni og meðalstóra hópa.

Uppsetningarmöguleikar eru sveigjanlegir: 

  • Allt að 20 manns við langborð
  • Allt að 30 manns í skólastofuuppsetningu

Salurinn er búinn öllum helsta fundarbúnaði, þar á meðal skjávarpa með HDMI-tengingu, þráðlausu interneti, blöðum og pennum.

Í boði eru sérsniðnir fundarpakkar sem geta m.a. innifalið:

Nánar um fundarsali

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og að laga lausnir að þörfum hvers hóps.

Sendu línu á myvatn@icehotels.is eða hringdu í 594 2000. Við hlökkum til að heyra frá þér!

 

Árshátíð á Norðurlandi

Berjaya Mývatn Hotel er tilvalinn staður til að halda árshátíð í fallegu og afskekktu umhverfi þar sem náttúran skapar einstaka stemningu. Hér fá fyrirtæki tækifæri til að sameina hátíðlega kvöldstund, góða samveru og þægilega gistingu á einum stað.

Við bjóðum upp á glæsilega framreiddan kvöldverð á Myllu Restaurant, þar sem lögð er áhersla á vandað hráefni og fallega framsetningu. Að kvöldi loknu geta gestir notið samveru í notalegu umhverfi hótelsins og slakað á í heitum pottum undir norðlenskum himni.

Gisting með morgunverði er í boði fyrir hópa og daginn eftir tekur á móti gestum ríkulegt og ferskt morgunverðarhlaðborð - fullkomin byrjun á nýjum degi eftir vel heppnaða árshátíð.

Við aðstoðum við að skipuleggja viðburðinn í samræmi við þarfir hvers hóps og leggjum áherslu á persónulega og faglega þjónustu í einstöku umhverfi við Mývatn.

Sendu línu á myvatn@icehotels.is eða hringdu í 594 2000. Við hlökkum til að heyra frá þér!

placeholder

Hópahittingur í sveitinni

Berjaya Mývatn Hotel er tilvalinn staður til að þjappa saman vinahópum, fjölskyldum, félagasamtökum eða vinnufélögum í fallegu og afslappandi umhverfi. Náttúran umlykur hótelið og býður upp á fjölbreyttar gönguleiðir og útivist, á meðan fjölmörg afþreyingartækifæri eru í næsta nágrenni.

Á hótelinu sjálfu er allt til alls fyrir vel heppnaða samveru.

Mylla Restaurant býður upp á glæsilegar veitingar í notalegu umhverfi og á útisvæði hótelsins má finna heitan pott þar sem hægt er að slaka á eftir daginn.

Í næsta húsi er Gamli Bærinn, þar sem stemningin ræður ríkjum með bar, karaoke og skemmtun. Einnig er tilvalið að safnast saman fyrir framan risa sjónvarpsskjá til að horfa á leikinn eða njóta góðrar kvikmyndar.

Gestir gista í fallegum herbergjum með útsýni yfir náttúruna og hefja daginn á ríkulegum morgunverði – fullkomin uppskrift að vel heppnuðum hópahittingi við Mývatn.

Við aðstoðum við að skipuleggja viðburðinn í samræmi við þarfir hvers hóps og leggjum áherslu á persónulega og faglega þjónustu í einstöku umhverfi við Mývatn.

Sendu línu á myvatn@icehotels.is eða hringdu í 594 2000. Við hlökkum til að heyra frá þér!

 


Veitingar og samvera

Á Berjaya Mývatn Hotel er lögð áhersla á góðar veitingar sem hluta af heildarupplifun gesta.

Mylla Restaurant er veitingastaður hótelsins þar sem boðið er upp á vandaðan mat í notalegu umhverfi. Veitingastaðurinn sér einnig um morgunverðarhlaðborð og getur útbúið hádegis- eða kvöldverðarhlaðborð fyrir hópa og viðburði eftir þörfum.

Inni á hótelinu er jafnframt notalegur bar sem er opinn alla daga frá kl. 16:00-23:00, með happy hour frá kl. 16:00-18:00. Þar er tilvalið að hittast fyrir kvöldverð, njóta léttari veitinga eða slaka á með drykk í góðum félagsskap.

Í næsta húsi við hótelið er Gamli Bærinn, líflegur bar sem er opinn alla daga yfir sumartímann. Yfir vetrarmánuðina er möguleiki fyrir hópa og viðburði að nýta aðstöðuna fyrir kvöldskemmtanir, karaoke og aðra skemmtilega samveru - fullkomin viðbót við fundi, árshátíðir eða hópahittinga við Mývatn.

 

placeholder

 

 

Fyrirtækjasamningar

Við leggjum okkur fram við að mæta þörfum fyrirtækja af öllum stærðum
og gerðum, hvort sem um er að ræða einyrkja eða stærstu fyrirtæki og
stofnanir landsins.

Skoða nánar