Fara í efni
Heim

Hótelið - Akureyri

Hótel Edda Akureyri

Hótelið er staðsett miðsvæðis á horni Þórunnarstrætis og Hrafnagilsstrætis og er starfrækt sem heimavist fyrir menntaskólana á veturna en á sumrin breytast vistirnar í fallegt hótel. Gamla vistin er með 72 herbergi - flest öll með handlaug og sameiginlegri - bað og salernisaðstöðu. Á nýju vistinni eru 132 Eddu Plús herbergi sem eru öll með sér baðherbergi, sjónvarpi og síma.

Stutt er í miðbæinn og sundlaugina frá hótelinu og ekki má gleyma lystigarðinum sem er við hliðina á hótelinu. 

 

Hótel Edda Akureyri

 

Hótel Edda Akureyri

Gestrisni af gamla skólanum

Frá heimavist til hótels - saga Edduhótelanna í stuttu máli

Edduhótelin hafa verið starfrækt síðan 1961 og minnumst þess með því að rifja upp fortíðina, upprunann og söguna sem er nánast samofin sögu ferðaþjónustu á Íslandi. Fram eftir síðustu öld voru erlendir ferðamenn sjaldséðir hér á landi. Það var í raun ekki fyrr en með almennum flugsamgöngum yfir Atlantshafið að fólk fór að koma hingað svo einhverju næmi til að skoða náttúruna og njóta landsins. Fram að því var fátt um gistirými eða þjónustu utan stærstu kaupstaða og innlendir ferðamenn gistu í tjöldum eða hjá vinum og kunningjum í sveitunum.

Með bættum efnahag og samgöngum jókst þörfin á þjónustu við ferðafólk hringinn í kring um landið. Við Íslendingar erum vön að bjarga okkur, finna lausnir í hvelli og nýta þá möguleika sem standa til boða. Í þeim anda fæddist sú hugmynd að nýta heimavistarskólana á landsbyggðinni sem hótel yfir sumarmánuðina þegar þeir stóðu auðir og árið 1961 opnaði Hótel Edda í fyrsta sinn að Laugarvatni og á Akureyri. Þótt nú séu Edduhótelin oftar en ekki í sérhönnuðu húsnæði byggjum við enn á þeirri hugmyndafræði að taka á móti gestum okkar með hlýjum og heimilislegum hætti, líkt og gert var í gömlu skólunum fyrir meira en hálfri öld.
Velkomin á Hótel Eddu í sumar.

 

Umhverfisstefna

Megin aðdráttarafl Íslands er hrein og ósnortin náttúra. Við hjá Hótel Eddu gerum okkur grein fyrir ábyrgð okkar gagnvart umhverfinu og leggjum áherslu á að vinna stöðugt að umbótum í umhverfismálum án þess að það komi niður á þjónustu við gesti.

Markmið í umhverfismálum:

  • Fara vel með auðlindir, draga úr úrgangi og auka endurvinnslu
  • Velja vörur og þjónustu með tilliti til umhverfisins
  • Leggja áherslu á að nota íslenskt hráefni og aðföng
  • Fylgja lögum og reglugerðum er varða umhverfismál og ganga lengra þar sem það á við
  • Upplýsa gesti um umhverfisstefnu hótelsins og hvernig þeir geti tekið þátt í að fylgja henni
  • Fræða starfsfólk og þjónustuaðila fyrirtækisins um umhverfismál og hvetja til aukins árangurs á þessu sviði
Hótel Edda Akureyri

 

Hótel Edda Akureyri

Umhverfið

Akureyri er í 390 km fjarlægð frá höfuðborginni og 250 km frá Egilstöðum á Héraði. Bærinn stendur við lengsta fjörð landsins, Eyjafjörð, og er umlukin háum fjöllum. Akureyri er um 60 km suður af heimskautsbaugnum en þrátt fyrir það getur hitastigið náð 25°C yfir sumarið.

Vetur geta verið snjóþungir og kaldir. Norðlæg staða Akureyrar hefur mikil áhrif á umhverfið. Verslun hófst hér á 16. öld en það var ekki fyrr en 1760 sem kaupmenn tóku upp fasta búsetu. Akureyri er stærsti byggðakjarni utan Reykjavíkur með um 19.000 íbúa. 

 

Menningarlíf

Menningarlíf blómstrar á Akureyri en þar er t.d sinfóníuhljómsveit, leikhús og listasöfn ásamt margskonar listviðburðum, veitingastöðum og næturklúbbum. Fjöldi verslana er í bænum sem bjóða fram merkjavörur. Háskólinn á Akureyri tók til starfa árið 1987. Lystigarðurinn var stofnaður 1912 af konum í bænum og þær önnuðust garðinn þar til bærinn tók við rekstrinum 1953.

Nyrsti golfklúbbur landsins er á Akureyri. Golfmótið "Akureyri Open" er haldið í júní hvert ár og keppnin hefst á miðnætti. Leikið er til árla morguns. Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. 

Hótel Edda Akureyri