Fara í efni
Heim

Hótelið - Egilsstaðir

Hótel Edda Egilsstaðir

Staðsett á Egilsstöðum sem er stærsta þéttbýli á Austfjörðum og stendur á bökkum Lagarfljóts. Íbúafjöldin er um 2300. Byggðin tók að þéttast um 1947 og þá sem þjónustumiðstöð fyrir bændabýlin á Fljótsdalshéraði. Staðsetningin var valin með tilliti til annarra Austfjarða og tenginga við vegakerfi landsins. Hér er nú miðstöð stjórnunar og samgangna.

Egilsstaðaflugvöllur er varaflugvöllur fyrir Keflavík því stórar þotur geta lent hér. Þrjár ferðir eru milli Reykjavíkur og Egilsstaða daglega í innanlandsflugi. Leiguvélar frá Evrópu lendir hér á sumrin. Veðurfar er meira í áttina að meginlandsloftslagi vegna þess að köld hafgolan nær ekki að streyma hingað inn. Skógurinn, fossarnir og fljótið m.a. gera þennan stað áhugaverðan fyrir ferðamenn. Fjarlægðin frá Reyðarfirði til Egilsstaða um Fagradal er 33 km. 

 

 

 

 

Hótel Edda Egilsstaðir
Hótel Edda Egilsstaðir

Gestrisni af gamla skólanum

Frá heimavist til hótels - saga Edduhótelanna í stuttu máli

Edduhótelin hafa verið starfrækt síðan 1961 og minnumst við þess með því að rifja upp fortíðina, upprunann og söguna sem er nánast samofin sögu ferðaþjónustu á Íslandi. Fram eftir síðustu öld voru erlendir ferðamenn sjaldséðir hér á landi. Það var í raun ekki fyrr en með almennum flugsamgöngum yfir Atlantshafið að fólk fór að koma hingað svo einhverju næmi til að skoða náttúruna og njóta landsins. Fram að því var fátt um gistirými eða þjónustu utan stærstu kaupstaða og innlendir ferðamenn gistu í tjöldum eða hjá vinum og kunningjum í sveitunum.

Með bættum efnahag og samgöngum jókst þörfin á þjónustu við ferðafólk hringinn í kring um landið. Við Íslendingar erum vön að bjarga okkur, finna lausnir í hvelli og nýta þá möguleika sem standa til boða. Í þeim anda fæddist sú hugmynd að nýta heimavistarskólana á landsbyggðinni sem hótel yfir sumarmánuðina þegar þeir stóðu auðir og árið 1961 opnaði Hótel Edda í fyrsta sinn að Laugarvatni og á Akureyri. Þótt nú séu Edduhótelin oftar en ekki í sérhönnuðu húsnæði byggjum við enn á þeirri hugmyndafræði að taka á móti gestum okkar með hlýjum og heimilislegum hætti, líkt og gert var í gömlu skólunum fyrir meira en hálfri öld.

Velkomin á Hótel Eddu í sumar. 

Umhverfisstefna

Megin aðdráttarafl Íslands er hrein og ósnortin náttúra. Við hjá Hótel Eddu gerum okkur grein fyrir ábyrgð okkar gagnvart umhverfinu og leggjum áherslu á að vinna stöðugt að umbótum í umhverfismálum án þess að það komi niður á þjónustu við gesti.

Markmið í umhverfismálum:

  • Fara vel með auðlindir, draga úr úrgangi og auka endurvinnslu
  • Velja vörur og þjónustu með tilliti til umhverfisins
  • Leggja áherslu á að nota íslenskt hráefni og aðföng
  • Fylgja lögum og reglugerðum er varða umhverfismál og ganga lengra þar sem það á við
  • Upplýsa gesti um umhverfisstefnu hótelsins og hvernig þeir geti tekið þátt í að fylgja henni
  • Fræða starfsfólk og þjónustuaðila fyrirtækisins um umhverfismál og hvetja til aukins árangurs á þessu sviði
Hótel Edda Egilsstaðir