Þetta erum við
![](/static/extras/images/konsulat_hotel_11275.jpg)
Vinna hjá okkur
Á hótelum okkar starfar frábær og fjölbreyttur hópur fólks, með skýr, sameiginleg markmið. Við berum virðingu fyrir gestum okkar og samstarfsmönnum. Þakklæti er leiðarljós okkar í samskiptum.
![](/static/extras/images/ih_myvatn-surroundings-061274.jpg)
Græn í gegn
Meginaðdráttarafl Íslands er hrein og ósnortin náttúra. Hótel okkar fylgja markvissri umhverfisstefnu og er allur okkar rekstur vottaður vistvænn eftir alþjóðlegum staðli ISO 14001.
![](/static/extras/images/timessquare1812.jpg)
Eignarhald og stjórn
Eigandi Iceland Hotel Collection by Berjaya er Berjaya Land Berhad. Stefna nýs félagsins að vera áfram leiðandi í hótelrekstri á Íslandi og um leið nýta sér þær alþjóðlegu tengingar sem Berjaya hefur.
![](/static/extras/images/img_29661272.jpg)
Menningarleg vitund
Hótelin starfa náið með samtímalistamönnum, tónlistarmönnum, hönnuðum og rithöfundum. Það samstarf hefur bæði áhrif á nærumhverfi gesta og starfsfólks og vettvang menningarlegrar samræðu í samfélaginu.
![](/static/extras/images/canopy-hallgrimskirkja783.jpg)
Samfélagsábyrgð
Við kappkostum að sýna ábyrgð gagnvart samfélaginu og umhverfinu og höfum samfélagsábyrgð að leiðarljósi í okkar daglegu starfsemi.
![](/static/extras/images/_mg_84381273.jpg)
Verðugt málefni
Við styrkjum ötult starf Landsbjargar ár hvert, og segjum sögur af fræknum björgunarafrekum þeirra á Berjaya Iceland Hotelum okkar.