Hilton hótel í Reykjavík

Hilton hótel í Reykjavík
Sem hluti af Iceland Hotel Collection by Berjaya erum við stolt af því að bjóða upp á úrval Hilton-hótela í Reykjavík, hvert með sinn einstaka karakter og sérstöðu í upplifun. Hótelin sameina trausta þjónustu og gæðastaðla Hilton við einstaka staðsetningar, vandaða hönnun og íslenska gestrisni.
Hvort sem þú leitar að líflegri borgarstemningu í hjarta miðbæjarins, lúxus með persónulegum blæ eða nútímalegum þægindum og alhliða þjónustu, bjóða hótelin okkar upp á frábæra umgjörð fyrir dvöl í Reykjavík. Menningarperlur, veitingastaðir á heimsmælikvarða og ógleymanleg ævintýri eru allt innan seilingar.
Kynntu þér hótelin okkar hér að neðan og finndu það sem hentar best fyrir þína dvöl í höfðuborginni.
Canopy by Hilton Reykjavik City Centre
Hótelið er staðsett í hjarta miðbæjarins og endurspeglar líflega stemningu borgarinnar og íslenska menningu.
Hótelið sækir innblástur í nærumhverfið og býður upp á stílhrein herbergi og frábæran veitingastað. Staðsetning er í göngufæri við veitingastaði, verslanir, gallerí og líflegt mannlíf Reykjavíkur.
Helstu kostir
- Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur
- Nútímaleg hönnun með íslenskum áhrifum
- Helstu kennileiti í göngufæri
- Veitingastaðurinn Geiri Smart
- Hugguleg alrými
Hentar sérstaklega vel fyrir: Pör, vinahópa og þau sem vilja upplifa Reykjavík á persónulegan hátt.


Iceland Parliament Hotel, Curio Collection by Hilton
Hótelið er staðsett við Austurvöll, í hjarta Reykjavíkur, þar sem saga, menning og nútímalegt borgarlíf mætast. Hótelið er í fallega enduruppgerðum sögufrægum byggingum við Alþingishúsið og býður upp á glæsilega gistingu í göngufæri við helstu kennileiti borgarinnar, veitingastaði og menningarafþreyingu.
Innanhússhönnun hótelsins einkennist af vandlega völdum smáatriðum og listaverkum, en segja má að um sé að ræða listagallerí þar sem íslensk samtímalist er í forgrunni.
Helstu kostir
- Einstök staðsetning við Austurvöll
- Gallerí með íslenskri samtímalist
- Parliament Spa
- Veitingastaðurinn Hjá Jóni
- Helstu kennileiti Reykjavíkur í göngufæri
Hentar sérstaklega vel fyrir: Ferðalanga sem kunna að meta lúxus og góða þjónustu, áhugafólk um menningu og sögu og þau sem vilja njóta Reykjavíkur í einstakri umgjörð.
Reykjavik Konsúlat Hotel, Curio Collection by Hilton
Hótelið sameinar lúxus með persónulegum blæ og sterka tengingu við sögu og menningu borgarinnar. Reykjavík Konsúlat sækir innblástur í sögu kaupmannsins og ræðismannsins Thomsen og endurspeglar frumkvöðlaanda Íslendinga með vandaðri hönnun, sögulegum smáatriðum og hlýlegu andrúmslofti.
Hótelið er hluti af Curio Collection by Hilton og býður upp á einstaka gistingu þar sem íslensk arfleifð mætir nútímalegum þægindum. Í næsta nágrenni eru fjölbreyttir veitingastaðir, verslanir og menningarupplifanir sem gera það að frábærum upphafspunkti til að kynnast sjarma og sérkennum höfuðborgarinnar.
Helstu kostir
- Persónulegt 50 herbergja lúxushótel með innblæstri frá íslenskri kaupmannasögu
- Kvöldfrágangur á herbergi samkvæmt beiðni (Turndown Service)
- Hlýleg og aðlaðandi alrými
- Einstakt baðhús
- Verslanir, veitingastaðir og menningarafþreying í örfárra skrefa fjarlægð
Hentar sérstaklega vel fyrir: Pör, áhugafólk um menningu og sögu og þau sem vilja njóta glæsilegrar gistingar með persónulegum blæ í hjarta miðbæjarins.

Hvaða Hilton hótel í Reykjavík er fullkomið fyrir þig?
Lífleg borgarstemning í hjarta miðbæjarins
Persónulegt lúxushótel með einstaka sögulega tengingu
Fágað og heimsborgarlegt andrúmsloft í sögulegu umhverfi
Canopy by Hilton Reykjavík City Centre
Reykjavík Konsúlat Hotel, Curio Collection by Hilton
Iceland Parliament Hotel, Curio Collection by Hilton