Fara í efni

Spurt og svarað - Gjafabréf

Spurt og svarað - Gjafabréf

Afhending gjafabréfa.

Gjafabréf eru send sem PDF á tölvupóstfang sem gefið upp í kaupferlinu.

Til að fá útprentun hjá okkur biðjum við þig að senda gjafabréfið á netfang viðkomandi móttöku sem hentar þér best að sækja á.

Gjafabréf fyrir gistingu. Hvernig bóka ég?

  • Berjaya Iceland Hotels: Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Akureyri, Mývatn og Höfn
  • Hótel Alda Reykjavík
  • Hótel Edda Akureyri og Egilsstöðum

Þú smellir á linkinn hér: https://be.synxis.com/?adult=2&altdest=SWEST&arrive=2021-01-12&chain=15503&child=0&configcode=IcelandairGJAFABREF&currency=ISK&level=hotel&locale=en-GB&promo=GJAFABREF&rooms=1

  1. Veldu dagssetningu og smelltu á LEITA
  2. Veldu hótel með því að smella á VELJA HÓTEL
  3. Þá birtast herbergjatýpur. Þau herbergi sem eru í boði birtast á ISK 1 þar velur þú BÓKA NÚNA.
  4. Ef þú villt velja þér betri herbergjatýpu þá kemur upp hærra verð sem þú greiðir við komu á hótelið.
  5. Í næsta skrefi birtast möguleikar sem hægt er að bæta við bókunina. Þú annað hvort velur eða sleppir því og ferð svo í HALDA ÁFRAM
  6. Þá eru fylltar út allar upplýsingar um gestinn og gjafabréfanúmer skráð í reitinn GJAFABRÉFANÚMER.
  7. Kortanúmer þarf að fylgja með bókun til tryggingar.
  8. Afbókunarskilmálar: Vinsamlegast afbókið fyrir kl. 16:00, 24 klukkustundum fyrir komudag ef ekki er lengur þörf á bókuninni. Að öðrum kosti munum við taka af gjafabréfinu afbókunargjald að því sem nemur verði einnar nætur.
  9. Gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjafabréfi og verður rukkaður við komu á hótelið. Gistináttaskatturinn 2026 er 800 kr per nótt.
  • Hilton Reykjavík Nordica
  • Canopy by Hilton Reykjavík City Centre,
  • Iceland Parliament Hotel og
  • Konsúlat Hótel
  1. Sendu tölvupóst á reservations@icehotels.is eða hringdu í síma: 444 4570 með ósk um dagsetningu og gjafabréfanúmer við svörum þér til baka með hvað er laust og verði ef við á.
  2. Afbókunarskilmálar: Vinsamlegast afbókið fyrir kl. 16:00, 24 klukkustundum fyrir komudag ef ekki er lengur þörf á bókuninni. Að öðrum kosti munum við taka af gjafabréfinu afbókunargjald að því sem nemur verði einnar nætur.
  3. Gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjafabréfi og verður rukkaður við komu á hótelið. Gistináttaskatturinn 2026 er 800 kr per nótt.

Inneignarbréf. Hvernig bóka ég gistingu?

  • Berjaya Iceland Hotels: Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Akureyri, Mývatn og Höfn
  • Hótel Alda Reykjavík
  • Hótel Edda Akureyri og Egilsstöðum

Þú smellir á linkinn hér: https://be.synxis.com/?adult=2&altdest=SWEST&arrive=2021-01-12&chain=15503&child=0&configcode=IcelandairGJAFABREF&currency=ISK&level=hotel&locale=en-GB&promo=INNEIGN&rooms=1

Þú getur einnig valið eitthvað af okkar tilboðum og nýtt inneignarbréf sem greiðslu.
Tilboð | Iceland Hotel Collection by Berjaya |

  1. Veldu dagssetningu og smelltu á LEITA
  2. Veldu hótel með því að smella á VELJA HÓTEL
  3. Þá birtast herbergjatýpur. Þau þar velur þú herbergi á uppgefnu verði og velur svo BÓKA NÚNA.
  4. Athugið að ekki er hægt að bóka fyrirframgreidd verð með gjafabréfi. Þau verð eru rukkuð strax í bókunarferlinu á kreditkort sem er gefið upp.
  5. Í næsta skrefi birtast möguleikar sem hægt er að bæta við bókunina. Þú annað hvort velur eða sleppir því og ferð svo í HALDA ÁFRAM
  6. Þá eru fylltar út allar upplýsingar um gestinn og gjafabréfanúmer skráð í reitinn GJAFABRÉFANÚMER.
  7. Kortanúmer þarf að fylgja með bókun til tryggingar.
  8. Afbókunarskilmálar: Vinsamlegast afbókið fyrir kl. 16:00, 24 klukkustundum fyrir komudag ef ekki er lengur þörf á bókuninni. Að öðrum kosti munum við taka af gjafabréfinu afbókunargjald að því sem nemur verði einnar nætur.
  9. Gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjafabréfi og verður rukkaður við komu á hótelið. Gistináttaskatturinn 2026 er 800 kr per nótt.
  • Hilton Reykjavík Nordica
  • Canopy by Hilton Reykjavík City Centre,
  • Iceland Parliament Hotel og
  • Konsúlat Hótel
  1. Sendu tölvupóst á reservations@icehotels.is eða hringdu í síma: 444 4570 með ósk um dagsetningu og gjafabréfanúmer við svörum þér til baka með hvað er laust og verði ef við á.
  2. Afbókunarskilmálar: Vinsamlegast afbókið fyrir kl. 16:00, 24 klukkustundum fyrir komudag ef ekki er lengur þörf á bókuninni. Að öðrum kosti munum við taka af gjafabréfinu afbókunargjald að því sem nemur verði einnar nætur.
  3. Gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjafabréfi og verður rukkaður við komu á hótelið. Gistináttaskatturinn 2026 er 800 kr per nótt.

Hvar get ég notað Inneignargjafabréf?

Hægt er að nota öll okkar inneignargjafabréf á öllum okkar hótelum, veitingastöðum og heilsulindum.

Hver er gildistími gjafabréfa?

Inneignarbréf: Gilda í 4.ár frá útgáfudegi.

Gjafabréf í gistingu: Gilda sem gisting í 2 ár frá útgáfudegi og svo sem inneign í 2 ár í viðbót.

Gjafabréf á veitingastaði og á heilsulindum: Gilda í 1 ár frá útgáfudegi og svo sem inneign í 3 ár í viðbót.

Ég á útrunnið gjafabréf, get ég framlengt því?

Hafðu samband við reservations@icehotels.is og við könnum stöðuna fyrir þig.

Er hægt að fá gjafabréf endurgreitt?

Nei því miður er ekki hægt að fá gjafabréf endurgreidd.

Kemur upphæð gjafabréfs fram á bréfinu?

Upphæðin kemur fram á inneignar gjafabréfum. Uppæðin kemur ekki fram á gjafabréfum í sem gilda í gistingu, á veitingastöðum og á heilsulindum.

Get ég nýtt gjafabréfið mitt á öðrum stað en stendur á gjafabréfinu?

Já, þú getur nýtt inneignina sem er á bak við gjafabréfið á öllum okkar stöðum.

Hvernig get ég séð stöðuna á gjafabréfinu mínu?

Vinsamlegast sendu númerið á gjafabréfinu á reservations@icehotels.is og við látum þig vita með stöðuna.

Ég á gjafabréf á Hilton Reykjavík Nordica, Vox, Hilton Reykjavík Spa, Reykjavík Natura eða Satt - Hvað gerist 1.september.

Ef þú átt gjafabréf á Hilton Reykjavík Nordica, Vox, Hilton Reykjavík Spa, Reykjavík Natura eða Satt þá breytast þau í inneign hjá Iceland Hotel Collection by Berjaya frá og með 1.september og gilda þannig í 4.ár frá útgáfudegi.