Fara í efni

Morðgáta

Morð í skíðaskálanum

Skuggaleg kvöldstund - leysir þú gátuna?

Dagsetning: 10. apríl 2026
Verð: 13.900 kr á mann
Aldurstakmark: 20 ára
Viðburðurinn er á íslensku
Hefst klukkan 19.00!

Hópur vina hittist til að eiga saman notalega helgi í afskekktum skíðaskála. Þau ætla að skemmta sér, njóta lífsins við arineldinn, drekka ljúffenga heita drykki og gæða sér á góðum mat.

Þegar snjókoman eykst og myrkrið fellur á átta gestirnir sig á því að þau eru ekki bara með skíðagallann og góða skapið með sér. Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið, undir yfirborðinu kraumar gremja og fljótlega kemur í ljós að ekki komast allir heilu og höldnu heim úr skíðaskálanum. Það versta að morðinginn er einn af gestunum! Markmið þitt er að leysa málið á undan öllum öðrum og ákæra sökudólginn með réttum upplýsingum um ástæðu hans og aðferð.

Innifalið eru léttar veitingar og komudrykkur ásamt kvöldstund hlaðinni háska, dulúð og glamúr.
Happy Hour verð á drykkjum allan tímann.
Allir þátttakendur fá upplýsingar um sinn karakter í tölvupósti nokkrum dögum fyrir komu.

Settu upp grímuna og komdu þér á óvart í æsispennandi hlutverkaleik.
Hlín Pétursdóttir leikkona sér um að stjórna leiknum.

Bóka þarf í fyrirfram í viðburðinn með því að senda tölvupóst á hofn@icehotels.is

Ef bókað er fyrir fleiri en einn, vinsamlegast tilgreinið nöfn og netfang hina gestina tölvupóstinum

Langar þig að gista á hótelinu fyrir eða eftir viðburðinn?
Verð fyrir tveggja manna herbergi frá 23.480,- (11.740 per mann)*
Verð á eins manns herbergi frá 20.240,-*

Bóka herbergi

*Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Gistináttaskattur mun bætast við verðið og greiðist við komu. Gistináttaskattur árið 2026 er 800 kr per herbergi per nótt.