Þrettándinn
6. janúar
Deila þessum viðburði
Þrettándinn er haldin 6.janúar hvert ár og er seinasti dagur jólahátíðarinnar á Íslandi. Hefðin er sú að fólk um land allt fagnar með fjölskyldu og vinum með því að syngja og dansa álfadansa í kringum stóra varðelda, sprengja flugelda og borða hátíðlegan mat.
Nánari upplýsingar um staðsetningu varðelda má nálgast á heimasíðum eða fjölmiðlum.