Jól á landsbyggðinni
Jólin á Berjaya hótelunum á landsbyggðinni - vetrarparadís með hátíðarblæ 🎄
Njóttu aðventunnar í fallegu vetrarumhverfi á Norðurlandi og Austurlandi.
Berjaya Mývatn Hotel og Mylla Restaurant bjóða upp á töfrandi aðventustemningu í algjörri vetrarparadís við Mývatn. Gerðu þér ferð á þennan fallega stað yfir jólin, njóttu dýrindis jólahlaðborðs á Myllu Restaurant og gistu á heillandi hóteli!
Berjaya Hérað Hotel og Lyng Restaurant eru í hátíðarskapi. Kíktu á Egilsstaði yfir aðventuna í glæsilegt jólahlaðborð og notalega gistingu á Berjaya Hérað hótelinu!
Berjaya Akureyri Hotel og Aurora Restaurant bjóða upp á heillandi jólatilboð þar sem gisting og jólamatur sameinast í einum pakka. Njóttu jólahlaðborðs eða fjögurra rétta hátíðarseðils í hlýlegu og hátíðlegu umhverfi á Aurora Restaurant.